Biotech News

Alvotech semur við LOTTE Biologics í Syracuse í Bandaríkjunum um framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum og eykur þannig framleiðslugetu sína

Alvotech (ALVO)AlvotechFDA / regulatory

LOTTE Biologics mun framleiða nokkur af lyfjum Alvotech í verksmiðju sinni í New York-ríki

Samstarfið við LOTTE Biologics eykur framleiðsluafköst Alvotech enn frekar og mun gera fyrirtækinu kleift að mæta aukinni eftirspurn á alþjóðlegum mörkuðum

REYKJAVÍK, Ísland, og SEÚL, Suður-Kórea (6. október 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO; ALVO-SDB) og LOTTE Biologics tilkynntu í dag langtímasamstarf um framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðna. Samstarfið er liður í uppbyggingu alþjóðlegrar framleiðslu Alvotech. Alvotech er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu slíkra lyfja fyrir sjúklinga um allan heim. LOTTE Biologics sérhæfir sig í framleiðslu á líftæknilyfjum.

LOTTE Biologics mun framleiða virku lyfjaefnin í umsamdar líftæknilyfjahliðstæður Alvotech fyrir alþjóðlega markaði. Framleiðslan fer fram í verksmiðju fyrirtækisins í Syracuse í New York-ríki. Framleiðslugeta LOTTE Biologics er umtalsverð og rúma ræktunartankar verksmiðjunnar samtals 40.000 lítra. Verksmiðjan var áður í eigu BMS. Framleiðsluaðstaðan hefur uppfyllt ítrustu kröfur Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA) og hefur nýlega verið tekin út af FDA án athugasemda.

Með samningnum eykur Alvotech framleiðslugetu sína enn frekar á heimsvísu og getur brugðist hraðar við aukinni eftirspurn á alþjóðlegum mörkuðum, auk þess að anna eftirspurn eftir lyfjum sem félagið mun setja á markað á komandi árum. Með samstarfi við LOTTE Biologics og aðra framleiðendur, ásamt eigin framleiðslu, gerir Alvotech ráð fyrir að hafa næg afköst að minnsta kosti næstu tíu árin.

„Alvotech hefur þróað innanhúss eitt fjölbreyttasta úrval líftæknilyfjahliðstæðna,“ sagði Lisa Graver, forstjóri Alvotech. „Samstarfið við LOTTE Biologics mun auka afkastagetu Alvotech enn frekar og gera félaginu kleift að mæta aukinni eftirspurn eftir þeim lyfjum sem eru á markaði, ásamt því að koma nýjum lyfjum á markað. Með þessum samningi munum við búa yfir nægri framleiðslugetu næsta áratuginn á vegferð okkar til að auka aðgengi sjúklinga að hliðstæðulyfjum um allan heim.“

„Alvotech sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum fyrir alþjóðlega markaði, en með samstarfinu eykur LOTTE Biologics afkastagetu Alvotech,“ sagði James Park, forstjóri LOTTE Biologics. „Við hlökkum til að starfa með Alvotech og auka framboð á hliðstæðulyfjum. Framleiðsluaðstaða LOTTE Biologics í Syracuse býður Alvotech upp á mikinn sveigjanleika, enda er framleiðslugeta verksmiðjunnar næg.“

Unnið verður að yfirfærslu framleiðsluferla Alvotech til Bandaríkjanna og að því loknu verður sótt um samþykki FDA fyrir því að bæta verksmiðjunni í Syracuse inn í umsókn Alvotech.

Um Alvotech Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem m.a. geta nýst sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech . Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn , Facebook , Instagram og YouTube .

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið Benedikt Stefánsson, forstöðumaður alvotech.ir@alvotech.com

Related news

ALVOAlvotech2026-10-05 08:00 EST

Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) veitir viðbótarleyfi fyrir framleiðslu á hliðstæðunni við Humira í báðum framleiðslueiningum lyfjaverksmiðju Alvotech í Reykjavík

ALVOAlvotech2026-07-29 13:32 EST

Alvotech tilkynnir að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur lokið úttekt sinni á framleiðsluaðstöðu félagsins

AMRXAmneal Pharmaceuticals2026-07-01 12:30 EST

Amneal’s New U.S. Sterile Manufacturing Facility Selected for FDA PreCheck Pilot Program

ADMAADMA Biologics2026-05-04 11:00 EST

ADMA Biologics Announces FDA Approval to Expand the Label for ASCENIV™ to Include Pediatric Immune Compromised Patients Two Years of Age and Older

AMRXAmneal Pharmaceuticals2026-07-08 20:30 EST

Amneal and Adalvo Announce FDA Acceptance for Review of Two U.S. ANDAs for Generic Tirzepatide Autoinjector

ANIPANI Pharmaceuticals2026-09-23 10:55 EST

ANI Pharmaceuticals Announces the FDA Approval of Everolimus Tablets for Oral Suspension

ANIPANI Pharmaceuticals2026-04-20 10:50 EST

ANI Pharmaceuticals Announces the FDA Approval and Launch of Pimozide Tablets with 180 Day CGT Exclusivity

RHHBYRoche Holdings AG2026-09-30 05:00 EST

Roche’s fenebrutinib is the first BTK inhibitor to receive U.S. FDA filing acceptance in both relapsing and primary progressive multiple sclerosis

PHARPharming Group2026-09-25 14:30 EST

Pharming announces U.S. FDA acceptance and Priority Review of sNDA for lower doses of Joenja® to treat children with APDS

MDXGMiMedx2026-09-23 20:01 EST

MIMEDX Announces Favorable Federal Court Ruling in AXIOFILL® Regulatory Classification Matter

Alvotech

Global Biosimilar Developer and Manufacturer Alvotech is a biotechnology company focused exclusively on developing and manufacturing biosimilar medicines. It operates an integrated model covering cell-line development, process development, clinical studies, regulatory submissions, commercial-scale manufacturing, and supply to regional...

Recent company news

Stock data

Close
6.14 USD
Market cap
936.14M USD
Exchange
NASDAQ
Sector
Biopharma
Location
United States